Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

10.8.2009

Richard Hammond klæðist jakka frá 66°Norður

Richard HammondRichard Hammond, kynnir í hinum vinsæla bílaþætti Top Gear í Bretlandi kann svo sannarlega að meta fatnað frá 66°Norður. Í fyrstu tveimur þáttum nýjustu seríu Top Gear klæðist hann jakka sem ber nafnið Vindur og er vindþéttur ullarjakki með flísfóðri. Greinilegt er að Íslendingar fylgjast vel með Top Gear þáttunum því fyrirtækinu hafa borist margar ábendingar frá áhorfendum um fataval Richard Hammond þrátt fyrir að þessi þáttur hefur enn ekki verið sýndur á íslenskri sjónvarpsstöð.

Hammond hefur áður klæðst fatnaði frá 66°Norður í þættinum en hann kynntist vörum fyrirtækisins þegar þeir félagar í Top Gear voru við tökur á Íslandi fyrir nokkrum árum. Síðan þá hefur fyrirtækinu einnig borist fyrirspurnir frá framleiðendum Top Gear varðandi það að fá fatnað á upptökulið og kynna þáttarins þegar þeir hafa verið við tökur á köldum slóðum, t.d. þegar þeir fóru á Norðurpólinn í fylgd með Íslendingum á fjallajeppum.

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.

Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.


Veldu land : IS