Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

13.8.2009

Léttur jakki sem kemur á óvart

Langjökull PrimaLoftNýi Langjökull PrimaLoft jakkinn er komin í verslanir 66°Norður

Nýlega komu í verslanir 66°Norður nýir jakkar fyrir fullorðna sem bera nafnið Langjökull. Hér er á ferðinni léttur jakki fyrir dömur og herra sem er fylltur með PrimaLoft® einangrun. Síðastliðið haust var 66°Norður fyrst íslenskra útivistarfyrirtækja til að nota PrimaLoft® einangrun en þá komu á markaðinn jakkar sem bera nafnið Vatnajökull. Viðtökurnar við Vatnajökli voru framar öllum vonum og því verður gaman að fylgjast með því hvernig viðtökur Langjökull fær.

Langjökull jakkarnir eru með þægilegu sniði sem hentar vel til daglegra nota hvort heldur sem er í skólann eða á skrifstofuna. Jakkarnir eru léttir og liprir í hreyfingum en PrimaLoft® veitir góða einangrun gegn kulda um leið og það er einstaklega mjúkt og andar vel. Þar að auki er PrimaLoft® fyllingin vatnsfráhrindandi sem gerir það að verkum að líkaminn helst þurr og hlýr þrátt fyrir blautt íslenskt haust.

Um 66°Norður

Langjökull dömu PrimaLoft jakkiSjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.

Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.