Fréttir og viðburðir
27.8.2009
Liz Hayes kynnir Ísland í 66°Norður úlpu
Ástralska útgáfan af 60 mínútum kynnir frá ástandinu á Íslandi í þætti sínum. Liz Hayes þáttastjórnandi kom til Íslands og kynnti sér málin og tók viðtal við nokkra valinkunna menn. Hún telur að hafi Íslendingar hafa verið nógu brjálaðir til að koma sér í þessar ógöngur, þá eru Íslendingar nógu brjálaðir að koma sér úr þeim. Í hluta af kynningunni klæðist Liz Tindur dúnúlpu.
„Takið eitt stykki litla og frekar skrítna eyju í N-Altantshafi. Bætið við slatta af fiskimönnum sem halda að þeir séu alþjóðlegir bankamenn. Blandið með skvettu af víkingablóði. Og voila! Þið eruð komin með hreinar hamfarir sem kallast Ísland."
Skoðaðu þáttinn hér: http://sixtyminutes.ninemsn.com.au/article.aspx?id=855189
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
