Fréttir og viðburðir
16.9.2009
Þórsmörk Parka eru komnar í verslanir
Hinar sívinsælu Parka dúnúlpur eru komnar í verslanir. Mikil eftirspurn hefur verið á þessum flíkum og ekki að ástæðulausu. Þær eru hlýjar og góðar úr gæsadún og fiðurfyllingu. Einnig eru þær vatnsfráhrindandi og þola allt niður í -25°C. Viðtökurnar við dúnúlpunum hafa verið góðar enda upplagðar fyrir Íslenskt veðurfar.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.




