Fréttir og viðburðir
6.8.2010
Outside Magazine fjallar um vöru frá 66°Norður
Í tölublaði tímaritsins Outside - Buyers Guide sem gefið er út í Bandaríkjunum, voru 293 vetrarvörur prufaðar. Fyrsta varan sem er nefnd í upptalningunni er Glymur Shoftshell buxurnar frá 66°Norður. Þar segir að buxurnar séu tískulegar og upplagðar í skíðaferðina og útilegu, einnig til lengri ferðalaga yfir ójafnan farveg. Polartec Power Shield buxurnar eru vindheldar og halda viðkomandi þurrum og hlýjum sama hvert verkefnið er.
Þessu erum við hjá 66°Norður sammála, efnið í buxunum er bæði teygjanlegt og slitsterkt, ásamt því að vera vatnsfráhrindandi og 98% vinhelt. Buxurnar er hægt að nálgast í verslunum 66°Norður, og á vefverslun www.66north.is
Outside Magazine er stærsta útivistartímaritið í Bandaríkjunum. Útgefin eintök mánaðarlega í áskriftum og lausasölu eru 687.916 eintök. www.outside.away.com
Nánari upplýsingar veitir Helga Viðarsdóttir, markaðsstjóri 66°Norður í síma 535 6600 eða helga@66north.is
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
