Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

1.10.2009

Nýjar vörur í verslanir

66 Norður logoUndanfarnar vikur hafa verslanir 66°Norður verið að fyllast af nýjum vörum. Nýjar sendingar koma reglulega á haustmánuðum og hafa viðbrögðin ekki staðið á sér. Fatnaður 66°Norður á sér langa sögu og því vel þekkt merki hjá mörgum íslendingum.  Erlendir ferðamenn hafa einnig sýnt fatnaðinum mikinn áhuga og erlendir söluaðilar 66°Norður fara vel af stað inn í veturinn.

Nýjar dúnvörur t.d. Laugavegur dömukápa er einstaklega hlý og góð fyrir íslenskt veðurfar. Einnig hin sívinsæla Þórsmörk úlpa er komin í fallegum rauðum lit.

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.


Veldu land : IS