Fréttir og viðburðir
5.10.2009
Upphaf að þínum kvikmyndaferli
Myndbandakeppni 66°Norður stendur ný yfir í grunnskólum landsins. 66°Norður stendur fyrir keppninni en hugmyndin að henni kemur frá Sigurjóni Sighvatssyni, kvikmyndagerðarmanni og eiganda 66°Norður en hann vildi gefa börnum sem hafa áhuga á kvikmyndagerð tækifæri til þess að spreyta sig á þeim vettvangi.
Dómnefnd skipuðum þeim Katrínu Jakobsdóttur, menntamálaráðherra, Júlíus Kemp, leikstjóra, Sigurjóni Sighvatsyni, kvikmyndagerðarmanni og Böðvari Bjarka Péturssyni, skólastjóra Kvikmyndaskóla Íslands, munu fara yfir myndböndin og velja sigurvegara keppninnar. Myndböndin eru einnig sett á netið þar sem netkosning fer fram og vegur niðurstaða hennar inn í mat dómnefndar.
Þema kepninnar í ár er íslenskur iðnaður.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
