Fréttir og viðburðir
12.10.2009
Leiðangursstyrkur 66°Norður afhentur
66°Norður veitir árlega tvo leiðangursstyrki að andvirði 500.000 kr hvor til einstaklinga eða hópa og fela styrkirnir bæði í sér fatnað fyrir leiðangurinn og peningastyrk að upphæð allt að 200.000 kr.
Fjöldi einstaklinga og hópa sendu inn umsókn fyrir krefjandi leiðangur á nýjar slóðir og hefur valnefndin komið sér saman um hver hlýtur styrkinn að þessu sinni. Það eru félagar í Íslenska Alpaklúbbnum sem stefna á Lofoten í Noregi. Markmið leiðangursins er að kynna og klifra granítveggi og fjöll í Lofoten, Noregi. Þetta er ný og spennandi leið til að kynna áhugasömum fjallamönnum möguleika á fjallamennsku og útivist í Noregi. Þarna er hópurinn að fara á fáfarnari slóðir sem þó standa okkur nær. Ekki er vitað til þess að Íslendingar hafi áður gert sér ferð til Lofoten með það markmið að klifra þá tignarlegu tinda sem þar finnast.
Á myndinni má sjá þá Skarphéðinn Halldórsson, Halldór G. Eyjólfsson forstjóri 66°Norður og Svein Fr. Sveinsson. Á myndina vantar Björgvin Hilmarsson.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
