Fréttir og viðburðir
18.11.2009
Niðurstöður úr myndbandakeppninni
Niðurstöður myndbandakeppni 66°Norður og grunnskólanna.
Dómnefndin hefur lokið störfum sínum og komist að samhljóma niðurstöðu í myndbandakeppni 66°Norður og grunnskólanna.
Í flokknum 1-7 bekkur er vinningshafinn Háteigsskóli. Hægt er að sjá myndbandið hér.
Í flokknum 8-10 bekkur er vinningshafinn Austurbæjarskóli. Hægt er að sjá myndbandið hér.
Vinningshafarnir fá í verðlaun gjafabréf að verðmæti 150.000 kr. og fær skólinn Sony myndbandstökuvél sem nemendur hafa afnot af.
Einnig fær Bjarki Kjartansson, Lundarskóla Akureyri, sérstaka viðurkenningu fyrir vel unnið og skemmtilegt myndband. Hægt er að skoða það hér.
Afhending verðlauna fer fram í verslun 66°Norður, Faxafeni 12, laugardaginn 21. nóvember kl. 10:00
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra mun afhenda verðlaunin, ásamt Halldóri G. Eyjólfssyni, forstjóra 66°Norður.
66°Norður þakkar öllum þeim sem að tóku þátt.
Hægt er að nálgast öll myndböndin á vef Youtube
Um 66°Norður Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár. Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
