Fréttir og viðburðir
24.11.2009
Verðlaunaafhending í myndbandakeppni 66°Norður
Grunnskólanemendur sýndu færni sína með myndavélarnar í keppni sem 66° Norður stóð fyrir. Menntamálaráðherra taldi sig sjá kvikmyndagerðarfólk framtíðarinnar í keppninni.
Myndbandakeppni á vegum fataframleiðandans 66° Norður hefur staðið yfir í grunnskólum landsins undanfarnar vikur. Alls tóku sjötíu grunnskólar á landinu þátt í keppninni en hugmyndin kemur upphaflega frá kvikmyndagerðarmanninum Sigurjóni Sighvatssyni. Þema keppninnar í ár var íslenskur iðnaður og fór verðlaunaafhendingin fram síðastliðinn laugardag. Háteigsskóli sigraði í yngri aldurshópnum en Austurbæjarskóli bar sigur úr býtum í eldri flokknum.
Menntamálaráðherrann Katrín Jakobsdóttir sat í dómnefnd ásamt Júlíusi Kemp leikstjóra, Sigurjóni Sighvatssyni og Böðvari Bjarka Péturssyni, skólastjóra Kvikmyndaskóla Íslands.
Katrín sagði að vafalítið væru í þessum hópi einhverjir kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar. "Mér fannst þetta mjög skemmtilegt og þá aðallega fannst mér gaman að sjá hvað börnin voru dugleg. Við í dómnefndinni fengum að sjá mjög fjölbreytt úrval myndbanda og þau virtust flest hafa náð mjög góðum tökum á grunntækni kvikmyndagerðar."

Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.




