Fréttir og viðburðir
10.1.2010
Toppaðu með 66°Norður
66°Norður og Íslenskir fjallaleiðsögumenn klífa Hvannadalshnúk til að auka vitund almennings um hlýnun jarðar.
66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn sameina krafta sína á ný á þessu ári og bjóða upp á hina vinsælu æfingaráætlun „Toppaðu með 66°Norður og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum“.
Þetta er þriðja árið sem verkefnið er í gangi og gefur fólki tækifæri til að ganga á Hvannadalshnúk, hæsta tind Íslands (2210 m), á suðurhluta Vatnajökuls, stærsta jökuls í Evrópu. Verkefnið býður göngufólki upp á frábæra lífsreynslu um leið og það lærir um umhverfislega ábyrgð. Fyrirtækin tvö leggja hart að sér að nota viðburðinn sem fræðslufarveg í þeim tilgangi að göngufólk geti fræðst um hlýnun jarðar og áhrif hennar á jökla Íslands.
Áætlunin er í tveimur þáttum:
- Fyrirlestrar og námskeið, þar sem þátttakendur eru fræddir um næringu, klæðnað, búnað, öryggi og umhverfislega ábyrgð.
- Fjórtán göngur, sem ætlað er að efla kunnáttu, öryggi, líkamlegt form og reynslu áður en haldið er á Hvannadalshnúk.
Þjálfunin hefst í febrúar og lýkur með fyrri Hnúksferðinni af tveimur, en þátttakendur geta valið um tvær dagsetningar tindastigs. Í fyrra náðu um 210 manns að standa á hæsta tindi Íslands eftir að hafa tekið þátt í æfingadagskrá Toppaðu með 66°Norður og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum. Fyrirlestrarnir, leiðsögn og námskeiðin eru innifalin í þáttökugjaldinu sem er 39.900 kr. Þeir sem taka þátt í dagskránni fá 20% afslátt af fatnaði frá 66°Norður og Íslenskir fjallaleiðsögumenn útvega allan búnað sem þarf í allar göngurnar. Íslenskir Fjallaleiðsögumenn og 66°Norður eru traustir samstarfsaðilar með umhverfisvitund að leiðarljósi. Íslenskir Fjallaleiðsögumenn hafa áralanga reynslu í fjallaleiðsögn og 66°Norður er leiðandi við þróun útivistarfatnaðar sem gerir göngufólki kleift að njóta útivistar við erfiðar aðstæður.
Toppaðu með 66°Norður og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum – undirbúningsáætlun
3. febrúar: Kynningar, áætlun og þjálfun.
10. febrúar: Miðvikudagur, þjálfun kl. 18:00: Heiðmörk v/Vífilstaði. Áætl. 2 klst.
17. febrúar: Miðvikudagur, þjálfun kl. 18:00: Úlfarsfell 295 m. Áætl. 2-3 klst.
20. febrúar: Laugardagur kl. 8:00. Hengill – Vörðuskegg 805 m. Áætl. 4-6 klst.
24. febrúar: Miðvikudagur kl. 20:00. Fræðsla um klæðnað, næringu og ferðalög.
3. mars: Miðvikudagur, þjálfun kl. 18:00: Meðalfell í Kjós 345 m. Áætl. 3 klst.
10. mars: Miðvikudagur, þjálfun kl, 18:00: Geitafell 509 m. Áætl. 3-4 klst.
20. mars: Laugardagur kl. 08:00. Botnssúlur Norður-Súla 1053 m. Áætl. 6-8 klst.
24. mars: Miðvikudagur, þjálfun kl. 18:00: Stóra-Kóngsfell 602 m. Áætl. 3-4 klst.
31. mars: Miðvikudagur, þjálfun kl. 18:00: Vífilsfell 655 m. Áætl. 3-4 klst.
7. apríl: Miðvikudagur kl. 20:00. Fræðsla um jöklaferðir og jöklabúnað.
10. apríl: Laugardagur kl. 7:00. Snæfellsjökull 1446 m. Áætl. 7-9 klst.
13. apríl: Miðvikudagur, þjálfun kl. 18:00: Kerhólakambur 743 m. Áætl. 2-4 klst.
28. apríl: Miðvikudagur, þjálfun kl. 18:00: Móskarðshnúkar 807 m. Áætl. 3-4 klst.
8. maí: Laugardagur kl. 8:00. Skarðsheiði – Heiðarhorn 1053 m. Áætl. 6-8 klst.
12. maí: Miðvikudagur, þjálfun kl. 18:00: Esja – Skálakambur 801 m. Áætl. 3-4 klst.
19. maí: Miðvikudagur, þjálfun kl. 18:00: Dýjadalshnúkur 800 m. Áætl. 3-4 klst.
29. maí: Laugardagur kl. 5:00. Hvannadalshnúkur 2110 m. Áætl. 12-15 klst.
5. júní: Laugardagur kl. 5:00. Hvannadalshnúkur 2110 m. Áætl. 12-15 klst.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
Um Íslenska Fjallaleiðsögumenn
Fyrirtækið Íslenskir Fjallaleiðsögumenn var stofnað árið 1994 og hefur markmiðið frá upphafi verið að fara ótroðnar slóðir með innlenda sem erlenda ferðamenn, opna augu fólks fyrir fjallaferðum, stuðla að verndun viðkvæmrar náttúru norðurslóða og að auka gæði og fagmennsku í leiðsögn.
Trúir þessum markmiðum, hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn staðið í farabroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í þróun nýrra ferða, umhverfismálum, menntun starfsmanna og öryggismálum. Sem þjónustufyrirtæki leggja Íslenskir Fjallaleiðsögumenn áherslu á breidd í ferðum, allt frá auðveldum dagsferðum til erfiðra heimskautaleiðangra, með mottóið ævintýri fyrir alla að leiðarljósi.
Heimasíða fyrirtækisins er www.mountainguide.is.
