Fréttir og viðburðir
20.1.2010
Íslensku keppendurnir klæðast 66°Norður fatnaði á Vetrarólympíuleikunum 2010
Íslensku þátttakendurnir á Vetrarólympíuleikunum klæðast 66°Norður fatnaði á leikunum sem fram fara í Vancouver í Kanada 12.-28. febrúar nk.
Íslensku keppendurnir og fylgdarlið þeirra munu ganga inn á ólympíuleikvanginn á sjálfri setningarathöfninni klæddir í fallegan og vandaðan fatnað frá 66°Norður. Fatnaðurinn sem ólympíufararnir klæðast er m.a. Kaldi peysa og húfa, Jaðar buxur, Hlíðarfjall skíðajakki og Hlíðarfjall skíðabuxur, Askja light jakki og síðast en ekki síst Surtsey húfa sem er sérmerkt og tengd Vetrarólympíuleikunum í Vancouver. Húfurnar verða einnig seldar í verslunum 66°Norður rennur hluti af söluágóðanum til styrktar ferðarinnar til Vancouver.
Íslensku keppendurnir á Vetrarólympíuleikunum 2010 í

Mikil eftirvænting ríkir meðal íslensku keppendanna enda eru Ólympíuleikar án efa stærsti viðburður sem nokkurn íþróttamann dreymir um og út af fyrir sig afrek að ná þeim viðmiðum sem krafist er til að öðlast þátttökurétt á leikunum. Spennandi verður að fylgjast með gengi íslensku keppendanna en þeir hafa æft sig mjög vel fyrir leikana. Allmargir Íslendingar búa í Vancouver og nágrenni og má fastlega búast við þeir mæti á leikana og hvetji landa sína til dáða.
Hægt er að kaupa Ólympíuhúfurnar í verslunum 66°Norður og á netinu. Hluti af söluágóðanum rennur til styrktar ferðarinnar í Vancouver. Húfurnar kosta 4.800 kr.
Kynningarmyndband með Skíðalandsliði Íslands
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.




