Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

12.2.2010

Elle í Belgíu fjallar um opnun verslunar 66°Norður í Belgiu

Elle fréttElle Magazine í Belgíu fjallar um opnun verslunar 66°Norður í Belgiu. Blaðið hefur um 200.000 lesendur skv. CIM (official instance media). Elle segir "Hvað gera Íslendingar? Þeir borða fisk í morgunmat, fara á skíði upp á jökul, og í heit böð utandyra. En hvað sem þeir gera, þá gera þeir það með stæl, í fatnaði frá 66°Norður. Þetta útivistar fyrirtæki fyrir herra, dömur og börn var árið 1926 að útbúa sjófatnað fyrir sjómenn sem þurftu að standast snjóstorma og sérstaklega kalt verður. Þessi tæknilegi og þægilegi fatnaður sem er mjög vinsæll á Íslandi, er nú fáanlegur í Belgíu".

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.

Senda á Facebook


Veldu land : IS