Fréttir og viðburðir
17.2.2010
Toppaðu með 66°Norður og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum á Facebook
Þriðja árið í röð býður 66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn uppá tækifæri til að ganga á Hvannadalshnúk. Þátttakendur verkefnisins hafa aldrei verið eins margir og í ár, rúmlega 200 manns búnir að skrá sig. Undirbúningurinn gengur vel og ekki of seint að vera með.
Stofnaðar hafa verið Facebook síður utan um Toppaðu verkefnið og er þar að finna allar upplýsingar um göngurnar, bloggfærslur frá þáttakendum, myndir og fljótlega myndbandsupptökur. Síðurnar eru tvær, ein á íslensku og ein á ensku. Endilega fylgið okkur á Facebook og bendið vinum á.
Til að skoða íslensku Facebook síðuna smellið hér.
Til að skoða ensku Facebook síðuna smellið hér.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er http://www.66north.is/.




