Fréttir og viðburðir
21.2.2010
Póstkort af Íslensku keppendunum á Vetrarólympíuleikunum 2010
Íslensku þátttakendurnir á Vetrarólympíuleikunum klæðast 66°Norður fatnaði á leikunum sem eru í Vancouver í Kanada 12.-28. Febrúar. Keppendurnir og fylgdarlið þeirra gengu inn á ólympíuleikvanginn á sjálfri setningarathöfninni klæddir í fallegan og vandaðan fatnað frá 66°Norður.
66°Norður býður nú viðskiptavinum upp á póstkort með mynd af keppnisliðinu, sem viðskiptavinir geta eignast til að senda vinum og ættingjum, eða til að eiga sem minjagrip. Gríptu póstkort í næstu verslun 66°Norður og styðjum við Ólympíufarana okkar.
Mikill hugur ríkir meðal íslensku keppendanna enda eru Ólympíuleikar án efa stærsti viðburður sem alla íþróttamenn dreymir um og út af fyrir sig afrek að ná þeim viðmiðum sem krafist er til að öðlast þátttökurétt á leikunum. Við erum stolt af okkar liði og óskum þeim velfarnaðar á Ólympíuleikunum.
Íslensku keppendurnir á Vetrarólympíuleikunum eru þau Árni Þorvaldsson, Björgvin Björgvinsson, Íris Guðmundsdóttir og Stefán Jón Sigurgeirsson. Þau keppa öll í alpagreinum á leikunum.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er http://www.66north.is/.
