Fréttir og viðburðir
15.3.2010
Fimmtudaginn 18. mars verður fyrirlestur á Nordica Hótel
Velkomin á fyrirlesturinn
Fimmtudaginn 18. mars mun 66°Norður og Félag Íslenskra FjallaLækna bjóða uppá fyrirlestur á Nordica Hótel kl. 20:00.
Michael Grocott er heimsfrægur fjallagarpur og gjörgæslulæknir frá London sem klifið hefur mörg af hæstu fjöllum veraldar, m.a. Everestfjall (8850 m) og Cho Oyu (8201 m). Í maí 2007 leiddi hann stærsta leiðangur sinnar tegundar, Xtreme Everest, á samnefnt fjall, þar sem rannsökuð voru áhrif súrefnisskorts á mannslíkamann. Rúmlega 200 manns tóku þátt í leiðangrinum og 8 læknar sem náðu toppnum tóku sýni úr hvor öðrum á leiðinni. Leiðangurinn vakti heimsathygli og hefur m.a. verið gert skil í frægum sjónvarpsþáttum á BBC; Everest: Doctors in the Death Zone og í hinu virta vísindariti New England Journal of Medicine. Mike er frábær fyrirlesari og mun lýsa göngunni á toppinn og þeim vandamálum sem leiðangursmenn urðu að kljást við. Fyrirlesturinn verður haldinn á ensku og er sniðinn að öllu áhugafólki um útiveruog fjallgöngur.
Tómas Guðbjartsson er prófessor og yfirlæknir á skurðdeild Landspítala. Tómas hefur áratuga reynslu af fjallgöngum og er einn af forsprökkum FÍFL, Félags Íslenskra FjallaLækna. Tómas mun greina frá eigin raunum og félaga sinna á hæsta fjalli Afríku, Kilimanjaro (5.895 m) en einnig rannsóknarleiðöngrum á Monte Rosa (4559 m) og Kilimanjaro í samstarfi við 66N.
Dagskráin:
- Inngangsorð: Halldór Eyjólfsson, framkvæmdastjóri 66°Norður
- Af hæðaveiki og læknum sem eru veikir fyrir fjöllum: Tómas Guðbjartsson
- Xtreme Everest leiðangurinn: Michael P. Grocott
- Umræður og spurningar
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er http://www.66north.is/.
