Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

26.8.2010

Lofoten ævintýrið hafið

Þrír íslendingar sem hlutu leiðangursstyrk 66°NORÐUR eru lagðir af stað í klifurleiðangur um Lofoten í norður  Noregi.

66°NORÐUR veitir árlega tvo leiðangursstyrki  annars vegar fyrir leiðangra til styrktar góðu málefni og hins vegar til krefjandi leiðangra á nýjar slóðir.

Síðastliðið haust hlutu þrír klifurmenn styrk til þess að fara í klifurferð til Lofoten í norður Noregi. Mörg skemmtileg og krefjandi klifursvæði eru á Lofoten allt frá fjallahryggjum og tindum að jöklum.

Á meðfylgjandi mynd eru leiðangursmennirnir í Lofoten; Björgvin Hilmarsson, Skarphéðinn Halldórsson og Sveinn Fr. Sveinsson

                                                                                               
Nú er tæp vika liðin af leiðangrinum og hafa leiðangursmennirnir nú þegar klifið Bara Blåbær og Coley Smoke í Djupfjørd (263 metrar). Það er ekki annað að heyra en að leiðangursmennirnir séu hæst ánægðir með ferðina, veðrið og k lifrið í Lofoten. Nú þegar hefur ný klifurleið litið dagsins ljós en sú er í Rørvik 45 metra norsk 5+ leið sem fékk nafnið Gloryhunter.

Hægt er að fylgjast með ævintýrum félaganna á bloggsíðu þeirra http://team66n.blogspot.com þar sem þeir setja inn myndir og fréttir.

Um 66°NORÐUR

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Team 66°NORTH

Sveinn Fr. Sveinsson - Sissi er virkur björgunarsveitamaður og áhugamaður um jaðarsport. Sissi hefur farið víða t.d. í klifurferðir til Pakistan, Frakklands, Spánar og Skotlands og skíðaferðir til Khazakstan og Kanada.
Björgvin Hilmarsson - Bjöggi lifir og hrærist í fjallamennsku, enda er hann í fullri vinnu hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum. Bjöggi er jafnvígur í ís- og klettaklifri, óþreytandi og hræðist ekkert.
Skarphéðinn Halldórsson - Skabbi er hugmyndasmiðurinn að ferðinni og hefur klifrað í rúman áratug. Hann hefur meðal annars farið í klifurleiðangur til Spánar.

Nánari upplýsingar gefur markaðsstjóri 66°NORÐUR, Helga Viðarsdóttir, helga@66north.is,  s: 535 6600

Veldu land : IS