Nú er skólinn byrjaður aftur og bætast þá við margir 6 ára krakkar á götur borgarinnar. Reikna má með að rúmlega 40.000 skólabörn hefji grunnskólanám í haust og hvetjum við því ökumenn að vera á varðbergi og sýna sérstaka aðgæslu í kringum skóla og virða hraðatakmörk. Einnig fer dagur að styttast og hvetjum við foreldra til að huga að endurskinsmerkjum fyrir börnin. Á næstu vikum verða fáanlegar upplýsingar frá 66°NORÐUR "Skólinn byrjar" og er þar að finna margar flíkur sem henta ungviðinu best í íslenskri veðráttu. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á vef
66°NORÐUR og í verslunum 66°NORÐUR.
Um 66°NORÐUR
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.