Fréttir og viðburðir
29.12.2011
66°NORÐUR og Landsbjörg
66°NORÐUR er afar stolt af því langa og góða samstarfi sem fyrirtækið hefur átt við björgunarsveitir landsins. Tæplega 18 þúsund sjálfboðaliðar starfa undir merkjum Landsbjargar um allt land. Um 3.500 manna útkallshópur er tilbúinn að bregðast við þegar neyðarkallið berst. Sjálfboðaliðar sveitanna hafa klæðst fatnaði frá 66°NORÐUR í 80 ár og þekkjum við vel það erfiða starf sem björgunarsveitirnar inna af hendi. Til að vekja athygli á óeigingjörnu starfi björgunarsveitanna höfum við hjá 66°NORÐUR hleypt af stað auglýsingum og látið gera stutt myndband um björgunarsveitina Kára í Öræfum. Sú sveit, líkt og ríflega hundrað aðrar sveitir í landinu, byggir á sjálfboðastarfi.
,,Myndinni er ætlað að minna okkur á að félagar í björgunarsveitum er venjulegt fólk. Það getur verið nágranni þinn eða vinnufélagi, kaupmaðurinn á horninu, skólabílstjórinn eða þjónninn. Þetta er allt fólk sem er tilbúið að hverfa frá daglegum skyldum til að koma öðrum til hjálpar oft og tíðum við mjög erfiðar aðstæður," segir Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66°NORÐUR.
,,66°NORÐUR hefur verið stoltur samstarfsaðili björgunarsveitanna allt frá árinu 1928. Sjálfboðaliðar sveitanna hafa klæðst fatnaði frá okkur í yfir 80 ár og við þekkjum vel það erfiða starf sem björgunarsveitirnar inna af hendi. Okkur finnst mikilvægt að minna á hversu mikilvægt er að svara kalli björgunarsveitanna um stuðning og styrkja þetta öfluga starf með kaupum á flugeldum björgunarsveitanna um áramótin," segir Helgi ennfremur.
Myndbandið má finna á veftímariti okkar: http://magazine.66north.is/. Það er okkar von að almenningur svari kalli björgunarsveitanna og styrkji þeirra öfluga starf með kaupum á flugeldum.
Um 66°NORÐUR
Sjóklæðagerðin - 66°NORÐUR er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
