Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

31.1.2012

66°NORÐUR tilnefnt til virtustu hönnunarverðlauna heims

Nýr jakki frá 66°NORÐUR , Eldborg hlaut nú í janúar tilnefningu í einni virtustu keppni sem haldin er á meðal framleiðendaJan Davidsson útivistarfatnaðar. Keppnin sem hér um ræðir er svokölluð ISPO Award sem haldin er í tengslum við ISPO sýninguna í Munchen í Þýskalandi sem er ein stærsta sinnar tegundar í útivistar- og íþróttaiðnaðinum. Jakkinn Eldborg var tilnefndur í flokknum „Outdoor Style“. Það eitt og sér að fá tilnefningu í samkeppni  sem þessari er mikil viðurkenning. Hundruð framleiðanda senda inn vörur í samkeppnina og einungis fáar vörur eru tilnefndar til verðlauna í hverjum flokki. Þess má til gamans geta að þetta er annað árið í röð sem 66°NORÐUR er tilnefnt til ISPO verðlauna en jakkinn Snæfell var árið 2011 tilnefndur og vann ISPO verðlaunin ásamt því að vinna Scandinavian Outdoor verðlaunin seinna sama ár. Jakkarnir voru báðir hannaðir af yfirhönnuði 66°NORÐUR, Jan Davidsson. Jan hefur starfað sem hönnuður hjá 66°NORÐUR með hléum frá árinu 1990.

Eldborg er jakki sem uppfyllir öll skilyrði til hreyfingar og útivistar. Jakkinn er gerður úr hágæða Polartec® efni sem veitir jakkanum þáEldborg jakkinn eiginleika að vera hlýr og vindþéttur, búa yfir mjög góðri öndun og að hrinda frá sér vatni. Hönnun og eiginleikar jakkans  gera það að verkum að hann hentar allri almennri útivist, hvort sem það er á skíðum eða í fjallgöngum. Útlit jakkans er það sem gerir hann frábrugðinn öðrum útivistarjökkum. Hann er mjög stílhreinn og fágaður enda hannaður með það í huga að viðkomandi geti einnig nýtt sér jakkann við dagleg störf og vinnu í borginni. Þetta er því að okkar mati fullkomin samsetning af útivistareiginleikum og götutísku sem hentar einkar vel í þeirri breytilegu veðráttu sem ríkir allan ársins hring hér á Íslandi.

Um 66°NORÐUR

Sjóklæðagerðin - 66°NORÐUR er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.


Veldu land : IS