Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

23.2.2012

Toppaðu fimmta árið í röð

Toppaður með 66°NORÐUR66°NORÐUR og Íslenskir fjallaleiðsögumenn sameina krafta sína á ný og bjóða upp á hina vinsælu æfingaáætlun „Toppaðu með 66°NORÐUR og Íslenskum fjallaleiðsögumönnum". Þetta er fimmta árið sem verkefnið er haldið en það veitir fólki tækifæri til að ganga á Hvannadalshnúk, hæsta tind Íslands (2110 m), sem er á suðurhluta Vatnajökuls, stærsta jökuls í Evrópu.

Áætlun verkefnisins er í tveimur þáttum. Annars vegar eru fyrirlestrar og námskeið, þar sem þátttakendur eru fræddir um næringu, klæðnað, búnað, öryggi og umhverfislega ábyrgð. Hins vegar eru fimmtán göngur, sem ætlað er að efla kunnáttu, líkamlegt form og reynslu þátttakenda áður en haldið er á Hvannadalshnúk. Þjálfunin hefst í febrúar og lýkur með Hnúksferð í maí. Í fyrra náðu um 120 manns að standa á hæsta tindi Íslands eftir að hafa tekið þátt í æfingadagskrá Toppaðu með 66°NORÐUR og Íslenskum fjallaleiðsögumönnum.

Fyrirtækin tvö hafa umhverfisvitund að leiðarljósi og leggja hart að sér að nota viðburðinn sem fræðslufarveg í þeim tilgangi að göngufólk geti fræðst um hlýnun jarðar og áhrif hennar á jökla Íslands. Íslenskir fjallaleiðsögumenn hafa áralanga reynslu í fjallaleiðsögn og 66°NORÐUR er leiðandi við þróun útivistarfatnaðar sem gerir göngufólki kleift að njóta útivistar við erfiðar aðstæður.

Um 66°NORÐUR

Sjóklæðagerðin - 66°NORÐUR er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.


Veldu land : IS