Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Leiðangursstyrkur 66°Norður

leiðangursstyrkur.web

66°NORÐUR hefur í áraraðir verið leiðandi framleiðandi útivistarfatnaðar og í ljósi þess leita margir til fyrirtækisins að leiðangursstyrkjum.  66°Norður hefur styrkt marga góða leiðangra á síðustu árum og má þar t.d. nefna göngu Mörtu Guðmundsdóttur yfir Grænlandsjökul til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands, göngu Leifs Arnars Svavarssonar Cho Oyu. Göngu „Fimm tinda“ á hæsta fjall hvers landshluta til styrktar Sjónarhóli og ferð Jóns Gunnars Benjamínssonar á fjórhjóli þvert yfir Ísland til þess að vekja athygli á aðgengi fatlaðra að hálendi Íslands. Klifurferð til Lofoten í Norður Noregi og styrkinn 2010 hlutu Áslaug og Aníta sem ferðast um óbyggðir Íslands á svifvængjum.

66°NORÐUR veitir árlega leiðangursstyrk til einstaklinga eða hópa að andvirði 500.000 kr. hvor. Styrkirnir fela hvort tveggja í sér fatnað fyrir leiðangurinn og peningastyrk að upphæð allt að 200.000 kr.

Styrkirnir eru metnir í hvert skipti og tekið til skoðunar m.a. leiðangrar sem eru farnir til stuðnings góðs málefnis og vinna að því að kynna eða safna pening fyrir málefið og einnig leiðangrar á krefjandi nýjar slóðir.

Umsóknarfrestur fyrir styrki er í  október ár hvert.

Nánar tilkynnt síðar.


Veldu land : IS