Sagan
Sjóklæðagerð Íslands hf. var stofnuð árið 1926 á Suðureyri við Súgandafjörð. Fyrirtækið dregur nafn sitt af Norðurheimskautsbaugnum sem er á 66 breiddargráðu Norður og liggur sunnan við Súgandafjörð. Stofnendur voru Hans Kristjánsson frá Súgandafirði ásamt nokkrum öðrum aðilum.
Fyrirtækið starfaði í upphafi í bakhúsi við Laugarveg en nokkrum árum seinna flytur fyrirtækið í stórt verksmiðjuhús í Skerjafirðinum. Þar hófst framleiðsla á öðrum hlífðarfatnaði en sjófatnaði, svo sem frökkum og kápum fyrir karla og konur, úlpum og almennum vinnufatnaði. Í Skerjafirði unnu á annað hundrað manns þegar flest var á þriðja áratugnum.
Árið 1941 brann verksmiðjuhúsið í Skerjafirði til kaldra kola. Í kjölfar þess var reist nýtt Sjóklæðagerðarhús við Skúlagötu 51 í Reykjavík. Húsið var tekið í notkun árið 1942 en fyrirtækið hafði þar meginstarfsemi sína allt til ársins 2000. Húsið þótti glæsileg bygging á þeim tíma og þótti talsvert í ráðist. Var það sérstaklega hannað með framleiðslu sjófatnaðar í huga og ekki síst hvað snerti sjálfan sjófatadúkinn sem var óolíuborinn þéttofinn hessianstrigi. Efni þetta var á þeim tíma notað í stjóstakka og sjóhatta, síldarsvuntur og annan sjó- og fiskfatnað. Þar sem striginn var óolíuborinn var sérstakur hluti hússins hannaður með það í huga að oliubera hann. Sú starfsemi fór fram á 400m2 grunnfleti en sá hluti hússins var opinn upp í rjáfur og eingöngu notaður til olíuböðunar á striganum og til þurkunar.
Striginn var dreginn á stórum trommlum í gegnum olíubað sem var komið fyrir í stórum blikkkerjum á neðstu hæð á kjallaragólfi. Striginn var síðan undinn á trommlum uppundir rjáfur til þurrkunar. Miklar eldvarnir voru viðhafðar í þessum hluta hússins vegna eldfimra efna enda var bruninn í Skerjafirðinum mönnum enn í fersku minni.
Í lok seinni Heimstyrjaldarinnar, þegar líða tók á seinni hluta fjórða áratugarins, varð gjörbreyting í framleiðslu á sjó- og regnfatnaði. Þetta var um 1945-48 en þá komu á markaðinn PVC efni. Þau voru vinyl húðuð og fengust í þeim lit sem óskað var eftir og hentuðu vel því hlutverki sem þeim var ætlað. PVC efnin voru mjúk og meðfærileg í notkun um leið og þau voru kuldaþolin þar sem það þurfti við. Auk þess voru PVC efnin miklu liprari og léttari en olíuborni striginn enda leystu þau hann af hólmi.
Sundur og saman
Það var árið 1966 sem þeir Þórarinn Elmar Jensen og Davíð S. Jónsson keyptu rekstur Sjóklæðagerðar Íslands hf. og stofnuðu Sjóklæðagerðina hf. Ekki var hægt að nota nafn Sjóklæðagerðar Íslands hf. áfram af tæknilegum ástæðum. Þeir félagar höfðu fyrir þann tíma rekið Verksmiðjuna Max hf. í um 10 ára skeið en Verksmiðjan Max framleiddi m.a. sjófatnað. Eftir kaupin fluttu þeir félagar starfsemi Verksmiðjunnar Max hf. í húsnæðið að Skúlagötu 51 þar sem þeir tóku á leigu mest allt húsnæðið eða um 1600m2. Þar var síðan starfsemi beggja fyrirtækjanna til húsa næstu 10 árin.
Árið 1977 skiptu þeir félagar fyrirtækjunum upp og kom Sjóklæðagerðin hf. í hlut Þórarins Elmars Jensens og Verksmiðjan Max í hlut Daviðs S. Jónssonar. Eftir þau skipti flutti Verksmiðja Max hf. í húsnæði við Hallarmúla en Sjóklæðagerðin hf. var áfram á Skúlagötunni. Þá hóf Max hf. framleiðslu sjófatnaðar í samkeppni við Sjóklæðagerðina hf. en samkeppnin varði næstu 15-20 árin. Það var á þeim tíma sem Sjóklæðagerðin tók upp vörumerkið 66°N. Alla tíð síðan hefur Sjóklæðagerðin framleitt fatnað undir vörumerkinu 66°NORÐUR.
Þegar kemur fram á áttunda áratuginn hefur Sjóklæðagerðin hf. haslað sér völl víða á íslenskum fatamarkaði. Fyrirtækið framleiddi ekki eingöngu sjó- og regnfatnað heldur einnig almennan útivistarfatnað. Framleiðslan var þar að auki ekki einskorðuð við Skúlagötuna heldur var nú framleitt á sex stöðum út um landið. Á þessum tíma störfuðu á þriðja hundrað manns hjá fyrirtækinu en framleiðslan var í fjórum deildum: Sjó- og regnfatadeild, Sport- og útivistardeild, Vinnufatadeild og framleiðsla Vinyl glófans.
Þegar líða tók á níunda áratuginn harðnaði mjög samkeppnin við innfluttan fatnað frá austulöndum fjær. Erfitt var að keppa við þennan fatnað vegna þess hve framleiðslukostnaður var hár á Íslandi. Fatafyrirtækjum hafði þá einnig farið mjög fækkandi vegna slæmrar samkeppnisstöðu og einungis voru eftir á markaðnum tveir stórir framleiðendur: Max hf. og Sóklæðagerðin hf. Það var svo árið 1998 sem Sjóklæðagerðin hf. kaupir Max hf.
og sameinast þá þessi tvö fyrirtæki aftur eftir 20 ára harða samkeppni á íslenskum markaði.
Árið 2000 var tekin ákvörðun um að leggja niður alla fataframleiðslu á Íslandi vegna óviðunandi samkeppnisstöðu hérlendis. Aukinn innflutningur frá fyrrgreindum löndum gerði það að verkum að samkeppnin varð sífellt harðari og að lokum var það svo að ekki var hægt að standa samkeppnina af sér.
Á næstu tveimur árum var framleiðslan flutt til Lettlands og henni skipt niður í þrjá flokka: Sjó- og regnfatnað, Flís- og útivistarfatnað og að lokum Vinnufatnað. Í dag starfa í Lettlandi um 150 manns í fimm framleiðsludeildum sem sérhæfa sig í: Sjó- og regnfatnaði, Vinnufatnaði, Flísfatnaði, Öndunarfatnaði og Vettlingum. Eftir þessar breytingar starfaði 66°NORÐUR í sama samkeppnisumhverfi og aðrir Skandínaviskir útivistarframleiðendur.
Starfsemin í dag
Í dag eru allar vörur fyrirtækisins framleiddar undir vörumerkinu 66°NORÐUR. Með tilkomu flísefna og hátækni öndunarefna um 1990 hófst nýtt tímabil í sögu fyrirtækisins. Framleiðsla og sala á útivistarfatnaði verður þá kjarninn í starfsemi fyrirtækisins. 66°NORÐUR leggur mikið upp úr því að framleiða eingöngu úr bestu fáanlegu efnunum hverju sinni og er það ástæða þess að fyrirtækið notar eingöngu Polartec® flísefni í framleiðslu sína. Polartec® er heimsleiðtoginn í framleiðslu flísefnis og fyrsta val allra stórra útivistarmerkja. 66°NORÐUR er með einkaleyfi á því að framleiða fatnað úr Polartec® flísefni fyrir Íslandsmarkað sem aðgreinir það frá öðrum íslenskum framleiðendum.
Annað efni sem 66°NORÐUR er með einkaleyfi á Íslandi fyrir er eVENT® öndunarefnið. eVENT® er hátækni öndunarfilma sem hlotið hefur fjölda viðurkenninga sem besta öndunarfilman á markaðnum. eVENT® filman er frábrugðin örðum öndunarfilmum á borð við GORE TEX® þar sem hún byrjar fyrr að veita rakauppgufun í gegnum sig. Sérstakar framleiðsludeildir fyrirtækisins í Lettlandi framleiða hágæðavöru úr þessum efnum undir vörumerkinu 66°NORÐUR og hafa vörurnar verið markaðssettar í Bandaríkjunum og Evrópu með athygliverðum árángri.
66°NORÐUR hefur sterk viðskiptatengsl við marga ólíka hópa og eru þau tengsl ómentanleg uppspretta þekkingar í hönnunarferli fyrirtækisins. Fyrirtækið er stolt af því að framleiða fatnað á lögregluna og slökkviliðið og er góð samvinna við þessa aðila þegar kemur að framleiðslunni. 66°NORÐUR vinnur einnig náið með Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu sem vinnur með hönnunardeild fyrirtækisins og kemur með innsýn þegar verið er að hanna hágæða útivistarfatnað sem þarf að þola verstu veðuraðstæður sem upp geta komið.
Fatnaður 66°NORÐUR hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir góða og nýstárlega hönnun úr hágæða efnum. Fyrir vikið hefur fyrirtækið hlotið fjölda verðlauna bæði fyrir hönnun og markaðsstarf. Á síðustu árum hefur 66°NORÐUR fært út kvíarnar og fást vörur fyrirtækisins nú í yfir 500 verslunum í 15 löndum. Árið 2006 opnaði 66°NORÐUR svo sína eigin skriftsofu í New York sem sér um sölu og markaðssetningu á vörum fyrirtækisins á Bandaríkjamarkaði.
Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Miðhrauni 11 í Garðabæ.
