Starfsemin
Sjóklæðagerðin - 66° NORÐUR er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins stofnað árið 1926 og hefur um áratugaskeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarna tvo áratugi hefur 66°NORÐUR vaxið hratt og hefur megin starfsemi fyrirtækisins verið í hönnun og framleiðslu útivistarfatnaðar. Sjóklæðagerðin 66°NORÐUR hefur hlotið fjölda verðlauna bæði fyrir hönnun og markaðssetningu síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og fást vörur undir merki 66°NORÐUR í yfir 500 verslunum í 15 löndum. Fyrirtækið rekur átta verslanir á Íslandi undir vörumerkjum 66°NORÐUR auk þess sem það rekur sex verslanir undir vörumerkjum Rammagerðarinnar. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru til húsa að Miðhrauni 11 í Garðabæ.
Ársvelta Sjóklæðagerðarinnar var 2.900 milljónir á árinu 2009.
66°NORÐUR
Miðhrauni 11
210 Garðabæ
Ísland
Kt. 550667-0299
Sími: 535 6600
Fax: 535 6601
Netfang: 66north(hjá)66north.is
Vefsíða: www.66north.is
