Verslanir
Sjóklæðagerðin - 66˚Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66˚ Norður og Rammagerðarinnar. Fyrirtækið rekur svo verslanir í Lettlandi, Litháen og Danmörku. Að auki fást vörur 66°Norður hjá endursöluaðilum í fjölmörgum löndum.





