Vatnajökull Dömu Softshell jakki með hettu
Gerð: K11168
Venjulegt verð: 46.500 kr (ISK) Göngudagar tilboð: 37.200 kr (ISK)
| Efni: |
| Polartec® Power Shield® Pro |
| Lýsing: |
- Sniðið á hettunni er einstaklega vel heppnað. Hettan fylgir hreyfingum höfuðsins svo að hún birgir aldrei hliðarsýn. Hægt er að stilla hana með teygju að aftan og í hliðum.
- Hettunni má auðveldlega smeygja yfir hjálm. Innan í henni eru dragbönd sem dregur úr líkum á því að böndin sláist í andlit og vindi og á henni er skyggni sem hægt er að stilla með innsaumuðum vír.
- Ermarnar eru sniðnar með olnboga svo þær fylgi hreyfingum handa. Lyftast ekki upp ef olboginn er beygður. Frelsi til að hreyfa sig án hafta. Stillanlegar með riflás.
- Vatnajökull Softshell jakkinn er léttur, aðeins 600 g, og pakkast vel. Hann hefur einstaklega góða öndunareiginleika og hentar vel til útivistar sem krefst líkamlegs erfiðis eða mikillar hreyfingar.
- Tvöfaldur vatnsheldur YKK rennilás á jakka og á vösum. Til að verjast því að vindur komist í gegnum rennilás er fóður innan undir honum sem nær upp undir höku, sem kemur í veg fyrir að rennilásinn erti hana.
- Jakkinn er 99% vindheldur en hleypir í gegn 1% af vindinum, sem skapar létt loftflæði og veldur því að öndunin verður hraðari og betri fyrir vikið.
- Vasarnir eru staðsettir ofarlega á jakkanum sem gerir þá aðgengilegri ef notast er við bakpoka með mittisól. Ofarleg staðsetning vasanna gerir þá að ákjóslegum handhiturum.
- Saumlausar axlir koma í veg fyrir að bleyta nuddist í gegnum saumana og einnig að bakpoki nuddist óþæginlega við axlir. Sniðið á jakkanum er sítt, sem minnkar líkur á að það blási inn milli jakka og buxna.
- Polartec Power Shield Pro er sterkt efni sem þolir mikinn núning, t.d. af bakpoka eða sigbelti. Efnið teygist á fjóra vegu, gefur vel eftir og er mjúkt viðkomu. 5000 mm vatnsheldni og 8 l/m2sek. öndun.
|
|